Jæææja... Nú er ég kominn með skjáinn, búinn að tengja hann og prófa svoldið

Prófaði fyrst að kíkja í GTA SA og vááá, sjitturinn titturinn hvað hann er betri svona á flatskjá

Ég bara féll bókstaflega inn í leikinn og gat alveg stillt á hæstu upplausn og spilað ágætlega þannig en svo minnkaði ég það aðeins og þá var maður í sko góðum málum

Svo prófaði ég aðra leiki líka eins og Quake 4, Doom 3 og Wolfenstein ET og allir komu þrusuvel út
Varðandi dauða pixla og svoleiðis þá virðist ekkert vera að skjánum, hann er bara í þrusufínu formi og ég er mjög ánægður með hann

Hátalarnir eru samt ekki neitt spes en það skiptir nú varla neinu svosem, hef fín heyrnartól sem ég nota oftast, svo eru hátalarnir nú bara aukaatriði hvort sem er

En varðandi dauða pixla annars, hversu áberandi eru þeir? Gæti ég verið með einhvern án þess að taka eftir því svona fyrst? Efast reyndar um það, en betra að vera viss

Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]