Hef verið að skoða 27" skjái á markaðnum og verið að spyrja hingað og þangað og misjöfn svör.
Nokkrar spurningar sem meistararnir hérna geta kannski hjálpað mér með.

1. Í fyrsta lagi hvort menn viti um einhvern 27" skjá sem er með einstaklega mjóann bezel á markaðnum.
2. Öðru einhver sé að keyra svona 27" eyefinity setup og geti svarað mér hvort þetta sé óþæginlega stórt. (svo segir sölumaður TL mér og mælir frekar með 24" skjám og þá sé úrval og auðvelt að finna skjái með mjóum bezel.
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
3. Þegar kemur að því að samstilla skjáina (koma sjaldan allir eins úr pakkanum þó þetta séu sömu týpur) er mikilvægt að það sé panill framan á með mörgum möguleikum til stillinga á contrast, litum osfr. eða hvort það sé alveg eins gott að nota nvidia software til að samræma liti, contrast osfr. í hverjum skjá fyrir sig?
4. Ef einhver alfróður maður ætlaði í 27" triple screen setup, hvaða skjá myndi hann velja sér?
Endilega segið mér hvað ykkur finnst.
