Ég var að spá, er þetta löglegt eða ólöglegt að vera með plex server ? eða er þetta á eithverju gráu svæði, þar sem þetta er straumur en ekki verið að fjölfalda skránna sem er á servernum ?
Fer það ekki alfarið eftir því hvaða efni þú ert með þarna inni? Plex skýlir sér væntanlega á bakvið það að contentið sem þú ert að deila sé á þína ábyrgð. Þú gætir verið með þínar eigin ljósmyndir og heimavídeó þarna, þ.e efni sem þú átt sjálfur höfundarréttinn af - ekkert ólöglegt við það.
Plex er bara verkfæri sem hægt er að nota á löglegan, sem og ólöglegan máta, myndi ég segja.