Opið á morgun? Vantar DDR4
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 260
- Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
- Reputation: 46
- Staða: Ótengdur
Opið á morgun? Vantar DDR4
Tölvan ákvað að gefast upp á besta tíma svo nú vantar mig að versla gott DDR4 minni, langar helst í þetta: https://kisildalur.is/category/10/products/1548 en þar sem það eru jól eru möguleikarnir af skornum skammti. Veit einhver um opna verslun á morgun sem gæti reddað þessu?
-
- spjallið.is
- Póstar: 472
- Skráði sig: Lau 07. Nóv 2020 00:22
- Reputation: 36
- Staðsetning: Selfoss (Selfoss er ekki til)
- Staða: Ótengdur
Re: Opið á morgun? Vantar DDR4
Virka daga 10:00 til 18:00, stendur neðst
með bíla og tölvur á huganum 24/7
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 985
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Reputation: 105
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Opið á morgun? Vantar DDR4
Ég mæli alltaf með Tölvutækni þar sem þau bjóða uppá lífstíðarábyrgð þegar það kemur að vinnsluminni.
https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... gb-3600mhz
https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... gb-3600mhz
Ryzen 7 5800X | ASRock B550M Steel Legend | Corsair 32GB (2x16) LPX 3200Mhz | RTX 3060ti | Seasonic Focus+ Gold | ATX Lancool II
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 260
- Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
- Reputation: 46
- Staða: Ótengdur
Re: Opið á morgun? Vantar DDR4
Já og það er laugardagur á morgun svo mig langaði að vita hvort það væri einhver séns að nálgast þetta fyrr en á mánudag
Re: Opið á morgun? Vantar DDR4
ChopTheDoggie skrifaði:Ég mæli alltaf með Tölvutækni þar sem þau bjóða uppá lífstíðarábyrgð þegar það kemur að vinnsluminni.
https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... gb-3600mhz
Hvað þýðir lífstíðarábyrgð?
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Opið á morgun? Vantar DDR4
Sjerrí skrifaði:Hvað þýðir lífstíðarábyrgð?
Örugglega einhver X tími eftir að framleiðslan á vörunúmerinu hættir
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 327
- Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
- Reputation: 72
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Opið á morgun? Vantar DDR4
Sjerrí skrifaði:ChopTheDoggie skrifaði:Ég mæli alltaf með Tölvutækni þar sem þau bjóða uppá lífstíðarábyrgð þegar það kemur að vinnsluminni.
https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... gb-3600mhz
Hvað þýðir lífstíðarábyrgð?
Lífstíðarábyrgð í svona vörum er hálfgert grín... Þetta eru hlutir sem eru notaðir í 2-3 ár, af fólkinu sem myndi nýta sér ábyrgðina. Restin notar þetta kannski í 5-6 og kaupir svo bara nýja tölvu ef þetta bilar og þá er það bara tölvan í heild sinni sem er "biluð" eða "ónýt". Þetta er bara auglýsinga-jargon.
Re: Opið á morgun? Vantar DDR4
Dóri S. skrifaði:Sjerrí skrifaði:ChopTheDoggie skrifaði:Ég mæli alltaf með Tölvutækni þar sem þau bjóða uppá lífstíðarábyrgð þegar það kemur að vinnsluminni.
https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... gb-3600mhz
Hvað þýðir lífstíðarábyrgð?
Lífstíðarábyrgð í svona vörum er hálfgert grín... Þetta eru hlutir sem eru notaðir í 2-3 ár, af fólkinu sem myndi nýta sér ábyrgðina. Restin notar þetta kannski í 5-6 og kaupir svo bara nýja tölvu ef þetta bilar og þá er það bara tölvan í heild sinni sem er "biluð" eða "ónýt". Þetta er bara auglýsinga-jargon.
Tjah, þegar ég vann hjá Tölvutækni þá allavega pössuðum við upp á þetta. Ef eldri tölva kom til okkar og reyndist vera með bilað vinnsluminni, þá ef hún var frá okkur þá skiptum við því út í ábyrgð, ef hún kom frá öðrum þá könnuðum við hvort það gæti mögulega verið í ábyrgð annars staðar og létum viðskiptavin vita.
Ástæðan fyrir lífstíðarábyrgð á vinnsluminni er samt auðvitað að þetta er íhlutur þar sem að galli kemur oftast fram snemma, svo það reynir ekki oft á lífstíðarábyrgðina. En auðvitað aldrei verra að hafa hana
Síðast breytt af Klemmi á Fös 25. Des 2020 22:33, breytt samtals 1 sinni.