Það eru að fara koma kosningar...

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8769
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1407
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Það eru að fara koma kosningar...

Pósturaf rapport » Þri 03. Feb 2026 16:14

Ojjj hvað mér þykir þetta ódýrt útspil svona korter í kosningar.

Börn undir 11 áta hafa fengið þetta frítt, nú er verið að bæta fimm árum við og spara foreldrum 60þ. á ári pr. haus yfir 11 ára.

Það ætti að bjóða öllum íbúum bæjarfélaganna að greiða 6000 kr. fyrir árið ef árskort er keypt í janúar.

Þá yrði þetta eins og með líkamsræktarkortin, að fólk kaupir í hrönnum en notar ekki.




Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1065
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 382
Staða: Ótengdur

Re: Það eru að fara koma kosningar...

Pósturaf Henjo » Þri 03. Feb 2026 17:27

Má semsagt ekkert gera á síðustu mánuðum fyrir kosningar því þá er það "ódýrt útspil"?



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8769
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1407
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Það eru að fara koma kosningar...

Pósturaf rapport » Þri 03. Feb 2026 21:10

Henjo skrifaði:Má semsagt ekkert gera á síðustu mánuðum fyrir kosningar því þá er það "ódýrt útspil"?


Nkl. það má ekki...

Þetta er ódýrt útspil á þessum tímapunkti frá flokkum sem hafa lagt áherlsu á að draga úr notkun einkabílsins og verið ítrekað bent á þennan galla á kerfinu að akkúrat þegar krakkar eru komin með aldur til að fara ein í strætó... þá kostar það...

Öll opinber þjónusta við börn ætti að vera ókeypis.



Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1065
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 382
Staða: Ótengdur

Re: Það eru að fara koma kosningar...

Pósturaf Henjo » Þri 03. Feb 2026 22:07

Well, aðgerðir vega meira en orð. Þetta er skárri en t.d. sjallar sem eru eflaust eina ferðina en að fara lofa áfengisaldur niður í 18 ára.



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8769
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1407
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Það eru að fara koma kosningar...

Pósturaf rapport » Mið 04. Feb 2026 08:11

Henjo skrifaði:Well, aðgerðir vega meira en orð. Þetta er skárri en t.d. sjallar sem eru eflaust eina ferðina en að fara lofa áfengisaldur niður í 18 ára.


Það er samt svo skrítið, ég er mjög lítið fyrir xD og hef bara einusinni kosið þá, 2010 þegar ég bjó í Keflavík og bara því að enginn annar flokkur var með trúverðuga kandídata á lista. Fullyrðing sem eldist kannski ekkert súper vel... https://kosningasaga.wordpress.com/svei ... janesbaer/

En eftir að hafa unnið hjá Reykjavíkurborg og verið í samskiptum við mikið af þessu fólki (https://reykjavik.is/borgarfulltruar) og þá sérstaklega um upplýsingatæknimál, rekstrarkostnað, ákvarðanir um innkaup og val á verkefnum í UT o.þ.h. þá eru tveir aðilar sem standa uppúr sem faglegir, hlusta, spurja spurninga, taka ráðgjöf eða útskýra af hverju þeir eru ósammála... og það eru bæði sjálfstæðismenn, Björn Gísla sem er mjög gott að eiga í samskiptum við og svo hún Ragnhildur Alda sem er mjög vanmetin, ég hefði viljað hana efst á lista xD og þá hefði verið kominn mikill freistni til að setja X við D í borginni í fyrsta skipti.