Intel EM64


Höfundur
CCR
Fiktari
Póstar: 60
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 19:01
Reputation: 0
Staðsetning: In the Middle of Nowhere
Staða: Ótengdur

Intel EM64

Pósturaf CCR » Þri 10. Maí 2005 14:42

Er einhver með góðar sögur af þessum Em64 örgjörvum sem intel eru með á sínu snæri




wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1302
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 57
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Þri 10. Maí 2005 17:46

Ég held að þeir séu ófáanlegir hér á landi enn sem komið er. Þeir einu sem hafa þessar 64-bita viðbætur núna eru 6XX örgjörvarnir, þeir hafa líka 2MB L2 skyndiminni, en það er hægvirkara en það sem er á venjulegu Prescott gjörvunum. Þar af leiðandi eru þeir aðeins örlítið hraðvirkari en samsvarandi 5XX gjörvar. En þeir eru líka með endurbætta hraðastýringu sem dregur örlítið úr orkuþörfinni í lítilli vinnslu og þeir eru líka eitthvað skárri í vinnslu hvað orkunotkunn varðar. Langt því frá jafn orkunýtnir og Athlon64 gjörvarnir en eilítið skárri en venjulegu Prescott gjörvarnir.

Helsti gallin við þá er verðið, en þeir eru u.þ.b. 1/3 dýrari en 5XX gjörvarnir m.v. sömu klukkutíðni.




Höfundur
CCR
Fiktari
Póstar: 60
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 19:01
Reputation: 0
Staðsetning: In the Middle of Nowhere
Staða: Ótengdur

Pósturaf CCR » Þri 10. Maí 2005 18:20

Tölvlistinn er samt kominn með þessa örgjörva sá ég á vörulistanum þeirra




wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1302
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 57
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Þri 10. Maí 2005 23:01

Já, það er víst, þeir eru loksins komnir með þá. 26.900Kr fyrir 630 vs. 20.900 fyrir 530, já þetta er tæplega 1/3 dýrara. Ég veit ekki hvort það sé þess virði. Ef menn vilja 64-bita gjörva þá er hægt að fá sambærilega Athlon64 gjörva sem eru mun svalari á 16.900 kall (S939), jafnvel ódýrar annars staðar. Leyfa Intel að lækka sig aðeins fyrst samkeppnisaðilinn bíður manni jafn góða eða betri vöru á minni pening.




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Mið 11. Maí 2005 10:41

Ég myndi nú samt frekar mæla með því að taka 64 bita Prescott með 2MB Cache heldur en 32bita með 1MB Cache, betra uppá framtíðina.

Annars er Athloninn líka 64 bita og mikið betri í leiki.